18.
maí 2004
Kæru landsmenn,
Fyrir nokkrum dögum fann ég fyrst
lyktina af sigrinum fagra og sál mín lyftist
upp á öldutopp. Þessi sigurvíma var
ánægjuleg og góð uppskera eftir langa
og reynsluríka baráttu. En eftir að hafa
upplifað sigur og fagnað honum með kærum
stuðningsmönnum mínum fékk ég
tilboð sem erfitt er að hafna.
Vöknuðu þá efasemdir hjá
mér að vilji minn til að sitja sem forseti
Íslands væri ekki jafn innilegur og ég
hélt. Efinn fékk mig til að endurskoða
þetta framboð mitt til embættis forseta Íslands
og hvort ég sé tilbúinn til að fórna
fjórum árum einmitt á þessum tímapunkti
þegar uppgangur er í myndlist og gæfan
fylgir mér á þeirri braut.
Auk þess þarf ekki mikið innsæi
til að sjá að komandi forsetakosningar verða
eintómur skrípaleikur. Sjálfsvirðingar
minnar vegna get ég ekki samþykkt að taka
þátt í slíkum sirkus.
Ég dreg því hér með
framboð mitt til forseta Íslands til baka, sáttur
og þakklátur stuðningsmönnum mínum
og velunnurum.
Spurningunni um hvort ég verði 6. forseti Íslands
verður ekki svarað að sinni.
Ég óska herra Ólafi Ragnari
Grímssyni til hamingju með væntanlegan sigur
og ég er fullviss um að við getum orðið
vinir.
Mér þykir vænt um Ástþór
og Baldur og vonast til að þeir finni þær
hillur í lífinu sem þeim er ætlað.
En ég lýk þessu framboði
með því að vitna í orð 5 ára
dóttur minnar: ” Pabbi, ekki vera forseti, vertu
bara listamaður.”
Virðingarfyllst
Snorri Ásmundsson
|