Aflátsbréf
Syndaaflátsbréf hafa ekki verið
seld í nokkur ár og hef ég
nú fengið leyfi frá almættinu
til að gefa slík bréf út
og selja litlum og stórum syndurum
í landinu. Aflátsbréfin
eru gefin út í þremur
flokkum:
3. flokkur fyrir hinn almenna syndara og kostar
aflausnin þá aðeins 5000
krónur.
Er fyrir léttvægar syndir eins
og hvítar lygar og óhreinar
hugsanir.
2. flokkur er fyrir þá sem hafa
drýgt stærri syndir og kostar
fyrirgefning stærri synda 10.000 krónur.
Er fyrir stærri syndir eins og þjófnaði,
skjalafals, framhjáhöld og ölvun
á almannafæri.
1. flokkur tryggir kaupandanum syndaaflát
fyrir allar syndir smáar sem stórar,
dauðasyndir og jafnvel morð. Einnig
eru innifaldar syndir sem enn hafa ekki verið
framdar svo og smærri misgjörðir
sem gleymst hafa. Fyrsta flokks kostar aflátsbréf
20.000 krónur.