25. mars 2004
Ísfirðingar vilja heiðra
Snorra!
Enn ein skrautfjöðurinn í
hnappagat Snorra Ásmundssonar.
Ísfirðingar hafa sóst eftir því
gera Snorra að heiðursborgara í bæjarfélaginu.
“Ég er hrærður! Þetta sýnir
mér að höfuðvígi Herra Ólafs
Ragnars er fallið og nú fara línur bráðum
að skýrast” sagði Snorri við stuðningsmenn
sýna á fundi í Smáralindinni í
gær. Merkilegast þó við þetta
allt saman að Snorri hefur aðeins einu sinni komið
til Ísafjarðar og það var þegar
hann var háseti á varðskipinu Tý
fyrir tæpum tuttugu árum síðan og
varðskipið hafði viðdvöl á Ísafirði
í nokkra stund.
“Ég man að heillaðist af fegurð fjarðarins
og ákvað að þangað myndi ég
koma aftur. En Ísfirðingar hafa heldur betur komið
mér í opna skjöldu með því
að heiðra mig á þennan hátt. Ég
er þeim mjög þakklátur og þetta
er sú hvatning sem ég þurfti.!
Þetta sannar svo um muni að Ísfirðingar
eru sómasamlegt fólk sem kallar ekki allt ömmu
sína.”
|